Laxá á Refasveit
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Laxá
    • Veiðistaðalýsing
    • Veiðihús
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Veiðibók 2013
    • Veiðibók 2014
    • Veiðibók 2015
    • Veiðibók 2016
  • Norðurá
  • Hafa samband

Veiðin hafin 2015

7/14/2015

0 Comments

 
Veiðin er komin á fullt eftir frekar rólega byrjun, laxinn lét sjá sig mun seinna en undanfarin ár og hefur verið tregur að taka.  Síðasta holl landaði 13 löxum og var sá stærsti 92 cm.  Mest hefur verið af laxi fyrir neðan laxastiga en nokkuð af laxi hefur sést í Flúðunum og svo í Neðri Rana.

Í vor fórum við í lagfæringar á ánni, svo núna er vel þess virði að gefa sér tíma til að skoða sig um milli Grófarhyls og Flúðanna.

Ofan við Flúðir og til móts við Einbúa var efnilegur en vatnslaus veiðistaður en nú hefur orðið breyting á og um að gera að reyna við hann í sumar.  Pistlahöfundur þekkir ekki hvort þessi staður bar nafn en auglýsir hér með eftir upplýsingum eða tillögum að nafni.

Picture
Picture
Picture





Vaðhylur var orðinn vatnslítill nema þegar mikið var í ánni.  Nú er hann orðinn vatnsmikill og kemur hann í langa aflíðandi beygju og hefur marga spennandi staði sem geta gefið lax, það verður spennandi að sjá hvernig hann kemur út í sumar.


Picture
Picture
Picture




Horneyri hefur einnig verið vatnslítil undanfarin ár og ekki verið að gefa fisk, nú verður breyting á því ef marka má myndirnar..


Picture
Picture
0 Comments

Your comment will be posted after it is approved.


Leave a Reply.

    RSS Feed

    Eldri fréttir

    July 2016
    October 2015
    August 2015
    July 2015
    October 2014
    July 2014
    June 2014
    April 2014
    November 2013

    Flokkar

    All

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.