Búið er að uppfæra veiðistaðarlýsingar fyrir Laxá og einnig er von á nánari lýsingum á veiðistöðum fram á dal. Veiðistaðalýsingar má sjá undir liðnum Laxá - Veiðistaðalýsingar eða hér.
Eftir fund með fiskifræðingi árinnar hefur verið ákveðið að breyta fyrirkomulagi veiðanna í Laxá. Kvóti verður rýmkaður og leyft verður að hafa með sér 12 fiska eftir hvert holl, hollið eru tveir dagar; hálfur, heill og hálfur dagur. Markmiðið með þessu er að jafna veiðina í ánni og koma í veg fyrir að of mikil hryggning eigi sér stað í henni. Sleppa skal öllum hryggnum lengri en 70 cm. Þegar 12 fiska kvótanum er náð mega veiðimenn veiða og sleppa að vild.
Mikil áhersla er lögð á að allir veiddir laxar verði skráðir í veiðibók. Nýjir leigutakar hafa tekið við Laxá á Refasveit en það eru heimamenn sem hafa mikinn áhuga á að auka vegferð árinnar. Leigutakar eru Atli Þór Gunnarsson á Mánaskál, Benedikt Sigfús Þórisson í Skrapatungu og Sindri Páll Bjarnason á Neðri-Mýrum.
Veiði á næsta tímabili verður með breyttu sniði frá því sem hefur verið en frá og með veiðisumarinu 2014 verður heimilt að taka einn lax á hverja stöng daglega en eftir það má veiða og sleppa að vild. Einnig er mælst til að menn sleppi hryggnum lengri en 70 cm. Eru þetta aðgerðir til að byggja upp stofn árinnar enn frekar. Einnig verða veiðileyfi í Norðurá seld sér en ekki með veiðileyfum í Laxá eins og verið hefur. Er þetta gert til að reyna að auka veiði í Norðurá en hingað til hafa veiðimenn lítið reynt fyrir sér þar. Í Norðurá er staðbundinn urriði og þar hefur laxi verið sleppt. Árlega greinist þar klak og á síðasta ári veiddist þar lax. Sleppa skal öllum laxi í Norðurá en taka má allan urriða. Það er von leigutaka að sala veiðileyfa í Norðurá muni varpa ljósi á stöðu árinnar og möguleika hennar til framtíðar. Veiði í Laxá á síðasta ári var góð eða 475 laxar í heildina. Meðalveiði Laxár síðstliðin 5 ár var 320 laxar á 2-3 stangir. Sala veiðileyfa er hafin og er hægt að panta veiðileyfi í gegn um síðuna hér. Leigutakar vonast til að Laxá á Refasveit muni eflast og nýjir og gamlir veiðifélagar haldi áfram að njóta árinnar og náttúrunnar. |
|